Flóttaleikir
Flóttaleikir (e. Escape games) eru ný tegund afþreyingar sem hefur farið sigurför um heiminn! Leikirnir hafa sameiginlegt grunnþema sem er að hópur einstaklinga er læstur inni í undarlegum aðstæðum svo sem:
- Fangaklefa
- Rannsóknarstofu vísindamanns
- Yfirgefnu barnaherbergi
- Hótelherbergi
- Heimili Guðföðurs
- Kvikmyndatökustað á 6. áratugnum
Hópurinn hefur 60 mínútur til þess að leysa allskyns gátur og þrautir sem krefst þess að hópurinn vinni náið saman, safna vísbendingum í þeim tilgangi að finna leiðina út
Reykjavík Escape býður upp á sex mismunandi flóttaleiki:
- Prison Break (fyrir 2–6 manns)
- The Scientist (fyrir 2–6 manns)
- Taken (fyrir 2–6 manns)
- The Hangover (fyrir 7–12 manns)
- Dúkkuhúsið (fyrir 4–7 manns)
- Guðfaðirinn (fyrir 2–6 manns)
Hvert herbergi hefur svo ákveðið þema og baksögu.