Gjafabréf hjá Reykjavik Escape
Gjafabréf okkar eru afar vinsæl gjöf sem veitir aðgang að æsispennandi upplifun þar sem lítill hópur fólks (2 til 12 manns) er læstur inni í sérstaklega útbúnu herbergi og fær 60 mínútur til þess að komast út!
Hægt er að velja milli sex leikja sem hafa mismunandi þemu, þrautir og vísbendingar sem standa í vegi fyrir útgöngu.
Leikirnir eru krefjandi og reyna verulega á útsjónarsemi, samvinnu- og skipulagshæfileika.
Verð gjafabréfa hjá Reykjavik Escape er 5.000 kr. á mann.
Gjafabréfin fást í húsnæði Reykjavik Escape við Borgartún 6 en einnig er hægt að panta þau hér fyrir neðan, í síma 546 0100, eða með því að senda okkur línu á info@reykjavikescape.is.

Loading...